Ađalvalmynd

Auglýsing

Leit

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Look Cool Riding Anything Funny Images, This is why I don't ride public transportation Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right

Prófíll

  • Nafn: Íris
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Heimavinnandi
  • Hjúskaparstađa: Hann heitir Denni
  • Um mig: Ég á mann,2 syni og 3 stjúpbörn

Ný síđa

07. júní 2008 klukkan 11:09
Það er frekar langt síðan en ég er komin með nýja síðu.....Glottandi
 http://www.123.is/viris

Spenningur

21. desember 2007 klukkan 12:06
Jæja þá eru jólin að nálgast á fullri ferð. Kominn rosa spenningur í Inga. Ágúst er ekki orðinn það stór að hann fattar þetta. En það verður kannski komið hjá honum á næsta ári Glottandi. Ingi telur niður daganna. Arna sagði áðan:- það er bara stutt í jólinn þá heyrðist í Inga:- Nei það eru alveg 3 dagar þangað til... Svo fyndið að heyra stundum í þessum krökkum.. Hlæjandi... Þetta er búið að vera þvílík byrjun á þessum mánuði.. Jeppinn okkar þurfti endilega að bila svo við þurftum að setja hann á verkstæði, þannig að við erum búin að vera bíllaus... Ferlega vont að vera bíllaus þennan mánuðinn.. Í þessu brjálaða veðri sem er búið að vera brotnaði aftur rúðan á jeppanum... Hann var inná verkstæðinu þegar þetta skeði.. Það brotnuðu 3 rúður á verkstæðinu og við það brotnaði aftur rúðan hjá okkur..... En sem betur fer þá fáum við þetta bætt.... Ég er búin að vera á fullu að hafa til fyrir jólin.... Ég er búin að gera mest allt sem betur fer, var farin að sjá fram á það að ég myndi ekki ná þessu...

Við förum í dag til R.víkur að klára kaupa jólagjafirnar, erum búin að kaupa flest allar.... Sandra ætlar að koma með okkur til baka.. Við förum svo með hana heim á þorláksmessu...

Nóg ađ gera...

04. desember 2007 klukkan 21:17
Það er bara búið að vera nóg að gera hjá mér núna síðustu daga... Ég fór með Mæju og Inga þegar það var kveikt á jólatrénu.. Ekkert smá kalt úff var að frjósa.. Fór í gær í klippingu og litun, var ekkert smá ánægð með það Hlæjandi.. Enda eru fimm mánuðir síðan ég fór síðast í klippingu og litun... Enda var hárið orðið frekar sítt og slitið... Ég lét bara klippa smá af hárinu vildi halda síddinni en er samt frekar óákveðin í hvort ég á að hafa mið sítt eða stutt hár hehe... Í dag þá fór ég og Denni suður til R.víkur, ég var að fara til tannlæknis eina ferðina enn og á frekar margar eftir eða allavega nokkrar.... Á morgun á pabbi afmæli en hann og mamma ætla að fara suður til R.víkur að versla jólagjafirnar.. Ég fer mað Inga í skólann í jólaföndur... Það verður bara gaman...

Stutt í jólin..

29. nóvember 2007 klukkan 13:42
Kannski að maður ætti að skrifa hér eitthvað smá inn... Orðið svoldið síðan síðast..

Við erum komin á Pajero aftur, við seldum Benzinn þar sem hann er eins og belja á svelli um leið og það kemur hálka.. Finnst betra að vera á öruggari bíl líka alltaf gaman að vera á jeppa sko hehe.. Við fengum okkur með dísilvél í þetta sinn enda er þessi að eyða helminginn minna en rauði Pajeroinn sem við áttum og hann var með bensínvél....

Við fórum á árshátíð þar síðustu helgi á Hótel Grand.. Þetta er ekkert smá flott þarna.. Við skemmtum okkur bara mjög vel... Samt þekkti ekki svo marga þar sem það eru svo margir hættir á vaktinni sem Denni er á og margir nýjir komnir... En þetta var bara mjög skemmtilegt....

Anna Sigga kíkti á mig á sunnudeginum eftir árshátíðina. Hún var búin að vera hjá mömmu sinni um helgina.. Hún tók Bínu með sér og það var ekkert smá sport fyrir hann Ágúst sérstaklega að elta hana og taka í skottið á henni hehehe... Það var æðislegt að Anna Sigga skildi kíkja enda er ég ekki búin að sjá hana síðan í Maí... Váá allt of langt síðan síðast....

Rut var að bjóða mér og strákunum til sín um á laugardaginn... Hún er kominn í stærri og betri íbúð þannig að hún getur boðið vinum sínum í heimsókn og að gista... Ég veit ekki hvort að ég fer en það er svoldið freistandi að kíkja til hennar og gista.. Denni verður að vinna næturvaktir núna um helgina svo ég á eftir að sjá hann lítið.....

Jæja ég ætla að vona að þetta takist núna hjá mér enda þriðja tilraun hehehe...
.

Dagurinn í dag...

31. október 2007 klukkan 23:28
Vaknaði við vekjaraklukkuna og var ekki að nenna að fara á fætur. En dröslaðist fram úr rúminu eftir að klukkan var búin að hringja 2svar... Vakti Inga í skólann og skreið svo aftur uppí.... Steinrotaðist aftur ætlaði ekki að sofna en var svo þreytt eftir síðustu nætur þar sem Ágúst er búinn að vera halda mér vakandi.... Vaknaði svo aftur um 9:30 við Ágúst að kalla "mamma" "mamma"... Ég tók hann uppí til mín og við kúrðum í smá stund og fórum svo á fætur.... Gaf honum jógúrt í morgunmat og hann var alveg alsæll með það litli kúturinn... Ég hlammaði mér fyrir framan imban og ennþá að vakna.... Skrölti svo út á svalir og fékk mér hálfa sígó... Hádeginu gaf ég Ágústi að borða og fékk mér svo líka.... Horfði yfir íbúðina okkar algerlega komin ógeð af henni þar sem hún er svo lítil að það má ekki vera neitt smá á gólfinu þá er komið drasl en hugsaði með mér að ég yrði að þrífa hérna..... Lét Ágúst fá sér smá lúr enda orðinn alveg örmagna krúttið... Hlammaði mér fyrir framan tölvuna svo ekki að nenna gera neitt... Langaði mest að leggjast uppí rúm og byrja á bókinni sem Þóra lánaði mér, Kleifarvatn... En ákvað að dunda mér smá í tölvunnni.... Ingi kom heim úr skólanum og Ágúst vaknaði við bróðir sinn... Hjálpaði honum að læra og fattaði svo að hann var orðinn of seinn á fótboltaæfingu ákvað bara að hann myndi sleppa henni í þetta sinn var ekki að nenna því að klæða Ágúst  og drattast með þá niður og vera komin rétt áður en æfingin myndi vera búin.... Byrjaði að fá þessa ógeðslegu tannpínu sem er búin að hrjá mig síðustu daga og var algerlega búin að fá nóg af þessu... Hugsaði samt með mér "sem betur fer er að fara til tannsa á morgun og áður en ég veit af þá er allar tennur komnar í lag og ekkert meira helvítis tannpínu vesen"..... Ákvað samt að þrífa þessu blessuðu íbúð enda veytti ekki af er búin að vera svo ferlega slöpp síðustu daga og hef ekki getað gert neitt...... Nennti ekki að elda þegar ég var búin fór með Ágúst niður til pabba og bað hann um að passa hann í smá stund en Ágúst var ekkert á því að leyfa mér að fara, fór að gráta þegar ég fór en það lagaðist fljótt...... Denni kom heim úr vinnuni, ég og Ingi að spila og Ágúst sat hjá okkur að framkalla hávaða með dóti sem hann fékk síðustu jól......

Gengur hćgt..

16. október 2007 klukkan 22:37
Jæja kannski er komin tími á það að ég skrifi smá fréttir af mér.
Það gengur frekar hægt hjá okkur að spara fyrir húsnæði enda er eitthvað svo mikið að gerast núna hjá okkur... Móturhjól og tannviðgerðir... En góðir hlutir gerast hægt..


Denni keypti sér móturhjól í haust (náði að klára að borga það núna í haust)... Hann keypti að það af vni sínum sem býr í Lúxemborg.. Hjólið er komið til landsins fyrir eiginlega löngu ef svo má segja... EKKERT SMÁ VESEN að ná í það hjá Eimskip úfff... Fórum fyrst og þá þurftum við fastnúmer og eitthvað fleira... Fórum svo nokkrum dögum seinna og fengum fast númer á það... Fórum á umferðastofuna til að fá fast númer og til að skrá það... Ekkert smá indælis maður sem aðstoðaði okkur með þetta... Reyndi allt til að hjálpa og redda okkur... Sagði við okkur að það tæki 3 virka daga að fá númerið og spurði hvort að okkur lægi nokkuð á.. Denni sagðist vera að fara vinna deginum eftir og vildi helst reyna ganga frá þessu í dag (vissum ekki að það tæki svona rosalegan tíma að fá hjólið)... Hann sagðist ætla reyna að redda þessu fyrir okkur og við myndum fá sms og e-mail þegar númerið kæmi... Þegar við vorum að fara komumst við að því að þessi maður er í Röftunum.... 20 mínútum seinna fékk ég sms um að númerið væri komið.... Vááá ekkert smá góð þjónusta þarna Brosandi.... Brunuðum niður í Eimskip til búin með allt sem þurfti til að fá hjólið... Þar vorum við send  hingað og þangað... Náðum svo að redda þessu öllu saman og komumst að því að það á eftir að tolla hjólið... Einn sagði okkur að hringja í mann og lét okkur fá númerið hjá honum til að tékka á hvernig gengi með hjólið og bjóst við því að við myndum fá það á mánudaginn.... Fórum á fimmtudaginn síðasta og Denni hringdi í gær í þetta númer sem við fengum en fékk ekki samband við þennan mann sem við áttum að tala við og hjólið verður ekki laust fyrr en fimmtudaginn næsta... Váá ekkert smá vesen að fá eitt hjól til landsins og lengi...... En við þurfum hvort eð er að fara suður á fimmtudaginn svo þetta sleppur allt saman..

Ég fer núna 1-2  í viku til tannlæknis.. Fékk alveg nóg á því að geta ekki brosað og vera mjög oft með tannpínu... Skil ekki afhverju ég fór ekki fyrr til tannlæknis??? Kannski að það sé að ég er SKÍT HRÆDD við tannlækna þökk sé tannlækninum mínum sem ég var hjá í æsku... Ég ætlaði að fara bara einu sinni mánuði þar að segja ef við hefðum efni á því enda er þetta ekki ódýrt... En sú sem ég er hjá vildi gera þetta sem fyrst því tennurnar í mér eru svo hrikalega illa farnar... Svo ég fæ að borga þetta smátt og smátt upp.. Hún er alveg æðislega sem ég er hjá... Samt þegar ég fer til hennar fer ég skjálfandi og sest í stólinn hennar... Hún var hissa á því að enda jaxlarnir hjá mér væru komnir hjá mér og það heilir.. Ég hélt að þeir ættu að gera það... Vissi samt að þegar Denni það kom einn hjá Denna fyrir 4 árum þá kom hann skemmdur... En mig bara hlakkar til að geta farið að hætta fá tannpínu, tuggið almennilega matinn og brosað aftur Þögull sem gröfin....

See yaa folks............

Benz

02. október 2007 klukkan 18:48
Hehehe míns er bara komin á Benz... Bjóst aldrei við því  Hissa.. Ég og Denni fórum á föstudaginn síðasta að sækja Söndru.. Við vorum búin að vera leita af ódýrum bíl þar sem Toyotan er alveg að fara segja sitt síðasta.... Við ákvöðum að kíkja á einn og það bara endaði með því að við keyptum hann hehehe... Þetta er ágætis bíll bara, er ´88 árgerð og lítur mjög vel út reyndar bara mun betur en Toyotan okkar... Við ætlum að henda Toyotuni þegar Reynir er búinn að hirða það sem honum vantar í sína af okkar....  Hann bara getur það ekki núna því hann brann svo rosalega illa á fæti.. Og er óvinnufær út af þessu..

Er hann ekki bara flottur????? Glottandi


Við ætlum samt að selja hann þegar við erum búin að finna bíl sem hentar okkur betur.. Tókum bara þennan því Denni var búinn að leita og leita af bíl en fann ekkert fyrir okkur og við getum ekki verið á Toyotuni þar sem það er bara spurning hvenær hún "deyr"....

Erna er líka að leita sér af bíl þar sem hún er búin að klessa bílinn sinn og hann fór svo illa að það er frekar erfitt og dýrt að gera við hann... Hún og vinir hennar sem voru með henni slösuðust ekki neitt sem betur fer... Ný komin með prófið skvísan Óákveðinn... En þetta getur gerst fyrir alla...


Annars er lítið að frétta af mér... Ég,Denni og Mæja kíktum á Dússa á laugardagskvöldið og skemmtum okkur bara mjög vel.. Vorum að pæla að fara heim en þá fylltist allt í einu staðurinn hehehe... Svo við vorum lengur og spjölluðum við liðið.... Þetta var bara gaman...

Íris kveður....

Lítill strákur lasinn..

20. september 2007 klukkan 11:33
Ég á engann jeppa núna Gráta. Við seldum Reynir og Hönnu jeppann okkar. Við ákvöðum að reyna safna okkur fyrir íbúð eða húsi.. Ætlum að reyna að safna uppí 20% þar sem maður fær bara lán núna fyrir 80%. En allt gott gerist hægt þannig að ég verð að reyna að vera þolinmóð hehe...

Ágúst er búinn að vera lasinn í viku... Er loks orðinn hitalaus en er ennþá með kvef.. Hann er að verða vitlaus á því að vera alltaf bara heima ekkert búinn að fá að fara út.. Reyndar er ég líka að verða vitlaus á þessu að fara ekkert út Glottandi... Ég og Denni keyptum svo mikið af mat um daginn að ég hef ekkert þurft að fara í búðina að versla... Nema ég fór um daginn og keypti hamborgara handa mér og Inga nennti ekki að elda... Ég er alveg uppgefin eftir daginn þar sem Ágúst er með svo mikla orku að hann veit ekkert hvað hann á að gera við hana hehhe... Labbar út um alla íbúðina allan daginn og tætir hehehe... Ég hef ekki við honum... Eftir að hann fór að hressast aðeins þá fór ég að leika við hann hljóp á eftir honum út um alla í búð og var að fíflast í honum... Ef það verður eitthvað gott veður áfram þá ætla ég að fara með hann út og leyfa honum að labba til að athuga hvort að þessi orka hans minnki ekki eitthvað við það hehehe.....

Það er búið að vera nóg að gera hjá Inga... Hann er búinn að fara í tvær réttir með Tóta, Jóni og Jóhönnu... Svo fór hann á sunnduaginn með mömmu og pabba og svo fór hann á mánudaginn með bekknum sínum.. Hann fer svo með pabba næstu helgi í réttir.. Var að vonast til að Sandra kæmi til okkar þá, væri gaman að leyfa henni að sjá þetta hún hefur aldrei farið í réttir áður... Ef Ágúst verður hress þá er ég að spá í að fara með þeim...

Hvađ er í gangi...

15. september 2007 klukkan 19:12
Hvað ætli sé í gangi hjá mér núna... Undanfarna daga er ég búin að vera eitthvað svo leið og hálf einmana... Veit ekki af hverju... Gæti kannski verið að mér finnist ég hálf einmana því ég er búin að halda mér bara inni og ekkert fara út, því Ágúst er búinn að vera með hita og kvef svo ég hef ekkert komist... Fer reyndar sjaldan í heimsókn og fæ eiginlega aldrei heimsóknir... Rut er flutt í burtu, Kristín komin með kærasta þannig að ég sé hana ekkert þessa dagana og heyri aldrei í henni.... Ææææ ég veit ekki annars... Ég ætti svo sem ekki vera að kvarta þar sem ég hef það bara fínt miðað við aðra en á það stundum til að vorkenna mér í smá stund....

Reykjanesferđ

10. september 2007 klukkan 12:41
 
Litli stubbur svo góður að horfa á sjónvarpið, en það var ekki lengi hehe...
Hann er ekkert mikið fyrir að horfa á sjónvarp sem betur fer Brosandi



Ég fór til doksa á þriðjudaginn og láta mæla hnút í leginu hjá mér. Sko þetta byrjaði þannig að ég sást hnútur í leginu hjá mér þegar ég fór í keisarann þegar ég átti Ágúst. Í september í fyrra þá fór ég til Vilhjálms kvenns.læknis til að láta fylgjast með þessum hnút. Hann mældi hann og sagði mér að koma eftir ár. Ef hnúturinn væri búinn að stækka þá yrði að fjarlægja þetta eins og hann orðaði það. Ég fór svo aftur á þriðjudaginn síðasta og þá var Vilhjálmur ekki við svo ég fór til Ásgeirs sem var að taka við Vilhjálmi. Hann sá það að hnúturinn væri búinn að stækka. Hann spurði mig hvort að ég vildi eignast fleiri börn. Eins og staðan er í dag þá langar mig ekki í fleiri. Hann útskýrði fyrir mér að það yrði kannski að taka legið hjá mér. En vildi láta mig koma eftir hálft ár og leyfa mér að hugsa málið hvort að ég vildi eignast fleiri börn. Þannig að ég þarf að koma eftir hálft ár og láta athuga hvort að hnúturinn hafi stækkað meira og hvort að það þarf að taka legið úr mér..... Skemmtileg til hugsun eða hitt og.....


En allavega þá fór ég og Mæja í heimsókn til Rutar og Hjölla í Reykjanesbæ. Þetta er ágætis íbúð sem þau eru með og engin smá sturta þarna hjá þeim. Hún er með nuddi,gufubaði og einhverju fleiru held ég. Ekkert smá mig langaði bara að taka þessa sturtu bara með mér heim hehehe Glottandi.
Það var rosalega gaman að kíkja þarna í heimsókn til þeirra. Tinna bauð okkur svo í mat til sín... Við fórum fljótlega heim eftir að við vorum búin að borða hjá henni. Ágúst orðinn svo þreyttur. Ég ætlaði að kíkja á Önnu Siggu en sumir voru bara búnir að gleyma því að míns ætlaði að kíkja í heimsókn eeehhheemmm Anna þó Glottandi. Ég hringdi í hana þá var hún bara í mat hjá systur sinni hehe....
 
 Vinirnir Jón Agnar og Ágúst..

Klukkan

Leikur dagsins